Lóðaþjónusta Hlyns Fá tilboð →

HELLULAGNIR
OG SNJÓBRÆÐSLUR

Fallegar, endingargóðar og vandaðar lausnir fyrir lóðina þína

Við tökum að okkur hellulagnir fyrir stíga, bílaplön, verönd og hleðslukanta fyrir heimili og fyrirtæki. Lögð er áhersla á góðan undirbúning, vandaða vinnu og snyrtilegan frágang svo útkoman endist vel við íslenskar aðstæður. Við setjum einnig upp snjóbræðslukerfi og sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda.

HELLULAGNIR SEM LYFTA HEILDARÚTLITI LÓÐARINNAR

Traust framkvæmd og snyrtilegur frágangur

Rétt uppbygging undir hellum skiptir öllu máli. Undirlagið ræður því hvernig yfirborðið heldur sér, sérstaklega við íslenskar aðstæður. Við tryggjum sterkt burðarlag og nákvæma hæðarstillingu svo hellurnar liggi rétt og haldist stöðugar.

  • Við byrjum á að fara vel yfir verkefnið með þér og metum aðstæður á lóðinni, svo sem hæðir, vatnshalla, jarðveg og notkun svæðis.
  • Undirvinnan er lykilatriði í góðri hellulögn. Við sjáum um uppgröft, burðarlag, þjöppun og hæðarstillingar svo hellurnar liggi rétt og haldist stöðugar.
  • Við leggjum metnað í að útkoman sé bæði falleg og praktísk. Við aðstoðum við val á útliti, mynstri og frágangi og getum einnig séð um kanta, kantsteina og hleðslur.
  • Við leggjum upp úr faglegum vinnubrögðum, skýrum samskiptum og snyrtilegum frágangi í öllum verkum.

AF HVERJU AÐ VELJA OKKUR?

Reynsla og þekking

Mikil reynsla af hellulögnum og hleðslum

Skipulag og yfirsýn

Verkið unnið markvisst frá upphafi til enda

Áreiðanleg framkvæmd

Mætum á réttum tíma og klárum verkið

Traust þjónusta

Skýr samskipti, sanngjarnt verð og snyrtilegur frágangur

ALGENGAR SPURNINGAR

Hvaða hellulagnir takið þið að ykkur?

Við tökum að okkur hellulagnir fyrir stíga, innkeyrslur, verönd og önnur svæði við heimili og fyrirtæki.

Bjóðið þið upp á snjóbræðslu?

Já, við setjum upp snjóbræðslukerfi í stígum og innkeyrslum og sjáum um allt ferlið frá upphafi til enda.

Sjáið þið um undirvinnu áður en hellur eru lagðar?

Já, við sjáum um uppgröft, burðarlag, þjöppun, hæðarstillingar og annan undirbúning áður en hellulögn hefst.

Á hvaða svæði vinnið þið?

Við vinnum aðallega á höfuðborgarsvæðinu en tökum einnig að okkur stærri verk á Suðurnesjum og í kringum Hveragerði og Selfoss.

Fáðu frítt tilboð í hellulögn fyrir þitt verkefni

Hvort sem þú þarft stíg, innkeyrslu, verönd eða heildarlausn fyrir lóðina, þá erum við tilbúin að fara yfir verkefnið með þér og finna bestu útfærsluna.

Senda fyrirspurn →